news

Nýtt skólaár hafið

05 Sep 2023

Nú hefur leikskólinn aftur opnað eftir sumarfrí og finnst okkur allir koma hressir og kátir til baka. Fyrsta aðlögun á yngstu deild er í gangi í þessari viku og hlökkum við til að kynnast nýju einstaklingunum sem eru að bætast við. Skipulagt starf mun svo hefjast á öllum deildum um miðjan septembermánuð en við viljum endilega minna á starfsdaginn sem er föstudaginn 15. september og þá er leikskólinn lokaður.