news

Lubbi afmæli

14 Nóv 2022

Lubbi okkar á afmæli núna að miðvikudaginn 16. nóvember eða á degi íslenskrar tungu. Í tilefni þess eru allar deildar að safna lubbabeinum til að færa honum í afmælisgjöf. Á beinin eru skráðar bækur sem lesnar eru fyrir börnin, bæði í leikskólanum og heima og þau límd upp á vegg eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Við þökkum foreldrum fyrir aðstoðina, það komu mörg bein að heiman.

Á afmælisdeginum ætlum við einnig að hittast í salnum og syngja fyrir hann afmælissönginn.