news

Karnivaldagur

13 Jún 2023

Í dag var haldið karnival hér á Eyrarvöllum. Deildunum var skipt upp í liti, þau sem vildu fengu andlitsmálningu og síðan var haldið af stað í skrúðgöngu. Í miðbænum var svo stoppað og tekin nokkur lög og dansað með. Skemmtilegt fannst okkur að sjá fyrirtæki og stofnanir kíkja út í dyr og glugga og heilsa upp á okkur :) Eftir skrúðgönguna var leikið sér hér úti á lóð, grillaðar pylsur og safi drukkinn með.