news

Jólaljósin tendruð í Neskaupstað

28 Nóv 2023

  1. Ljósin verða tendruð á jólatrénu í Neskaupstað sunnudaginn 3. desember kl: 16:00. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði og undanfarin ár. Jólasveinar munu mæta með tilheyrandi látum, lúðrasveitin spilar ljúfa jólatóna, 9 bekkingar munu dreifa piparkökum og svo hafa börnin á Eyrarvöllum verið að æfa jólalög og vonumst við eftir að einhver börn vilji koma upp og syngja fyrir viðstadda :)