news

Dótagjafir frá bæjarbúum

15 Jún 2023

Bæjarbúar virðast hafa verið duglegir í tiltekt undanfarna mánuði og höfum við leikskólinn verið svo lánsöm að fá heil leikföng sem hætt er að nota á heimilunum. Við erum afar þakklát fyrir slíkar gjafir og þær eru svo sannarlega að nýtast vel hér hjá okkur. Hér á myndinni má sjá farartæki sem Hulda Valdís kom og færði okkur í gær.