Karellen
news

Útskrift 2019 árgangsins

23. 05. 2025

Í gær, fimmtudaginn 22 maí, var útskrift 2019 árgangsins frá Eyrarvöllum. Dagurinn byrjaði á óvissudegi og síðan var útskrift í sal Nesskóla. Útskriftarbörnin fengu útskriftarskjal og ferilmöppu frá leikskólanum, merkt buff frá foreldrafélaginu og svo fengu þau birkiplöntu til að gróðursetja frá skógræktarfélaginu. Að lokinni útskrift var boðið upp á kaffi, djús og veitingar sem foreldrar barnanna sáu um. Við óskum öllum börnunum góðrar framtíðar og þökkum kærlega fyrir skemmtileg og lærdómsrík ár á Eyrarvöllum.

© 2016 - 2026 Karellen