Karellen
news

Heimsókn í tannverndarvikunni

23. 03. 2026

Í tilefni tannverndarvikunnar fengum við Víking tannlækni til okkar í heimsókn. Hann hitti börnin af fjórum elstu deildunum í salnum og vakti mikla lukku. Hann fór yfir almenna tannheilsu og ræddi hversu mikilvægt er að bursta vel og nota tannþráð. Börnin fengu síðan að tannbursta krókódíla- og drekabangsa ásamt því að skoða líkan af heilbrigðum og skemmdum tönnum. Víkingur gaf þeim að lokum öllum tannbursta til að taka heim og þrauta- og litablöð til að gera hér í leikskólanum.

© 2016 - 2026 Karellen