Í morgun kom Kristjana Skúladóttir frá Sögustund.is með smá leiksýningu til okkar á Eyrarvelli. Foreldrafélagið var svo dásamlegt að bjóða okkur upp á þessa sýningu og fóru börn allt niður í 1 árs í salinn til að fylgjast með. Allir skemmtu sér konunglega og viljum við þakka foreldrafélaginu kærlega fyrir okkur.