Í morgun buðu nokkrir góðir starfsmenn Eyrarvalla öllum deildum á leiksýningu í salnum. Sýningin var um Geiturnar þrjár og vakti hún mikla lukku. Einhver börnin voru þó pínu efins með þetta en voru að lokum mjög sátt og ánægð. Við á Eyrarvöllum megum sko vera þakklát með hugmyndaríka starfsfólkið okkar og vonumst eftir fleiri sýningum í framtíðinni.