Slökkvilið Fjarðabyggðar er þessa dagana að heimsækja alla leikskóla í Fjarðabyggð. Tilgangur heimsóknarinnar er að fræða 5 ára börn (elstu deild) um eldvarnir og er stuðst við efni frá Björnis brunabangsa. Okkar börn tóku vel á móti Indriða aðalvarðstjóra síðastliðinn mánudag og fengu með sér heimaverkefni sem mun vonandi vera til gagns og gamans fyrir hvert heimili.