news

Sumarlokun 2018

18 Jan 2018

SUMARLOKANIR LEIKSKÓLA

Á fundi fræðslunefndar 13.desember 2017 var samþykkt tillaga að sumarlokunum leikskóla 2018.

Lyngholt 14.06 - 11.07 báðir dagar meðtaldir

Eyrarvellir 28.06 - 25.07 báðir dagar meðtaldir

Kæribær 09.07 - 03.08 báðir dagar meðtaldir

Stöðvarfjarðarskóli 09.07 - 03.08 báðir dagar meðtaldir

Dalborg 19.07 - 16.08 báðir dagar meðtaldir

Þá geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra til átta vikna samfellt sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn til tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis. Foreldrum/forráðamönnum gefst því tækifæri til að færa börn á milli leikskóla og fyrirtæki sem sækja vinnuafl í marga byggðarkjarna eiga þannig auðveldara með að verða við óskum starfsmanna um sumarleyfi.