news

Síðasti vetrardagur & sumarfrí

24 Apr 2023

Síðasti vetrardagur skartaði sínu fegursta hér á Eyrarvöllum. Mikil útivera var þennan dag og elstu þrjár deildarnar borðuðu kaffitímann sinn úti. Við óskum öllum gleðilegs sumars og hlökkum til að njóta þess í botn með þessum frábæra hóp. Sumarfrí leikskólans verður frá og með 21. júlí til og með 18. ágúst og síðan er starfsdagur 21. ágúst. Við minnum á að gott er að skrá sumarleyfi barnanna á blaðið sem hangir uppi við hverja deild fyrir komandi föstudag.