news

Kerrur í gjöf frá SÚN

30 Okt 2017

Við erum svo ótrúlega heppin hér í leikskólanum og bara í bænum öllum að hafa SÚN til þess að styrkja hin ýmsu málefni. SÚN gaf það út við opnun leikskólans að við ættum inni hjá þeim dágóða upphæð og ættum bara að láta vita þegar við fyndum það sem við vildum kaupa. Við keyptum því 2 sexburakerrur sem er dásamlegt að eiga fyrir þessi litlu kríli sem eru ekki farin að labba. Þá er hægt að brjóta aðeins upp daginn og fara í gönguferð eitthvað útfyrir leikskólalóðina. SÚN gaf einnig Bluetooth hátalara á allar deildar og í salinn en við eigum eftir að kaupa þá. Takk kærlega fyrir okkur SÚN.