news

Jólaball Eyrarvalla

21 Des 2023

Í gær var haldið jólaball á Eyrarvöllum - þá hittumst við í salnum, dönsuðum í kringum jólatréð og sungum jólalög. í lokin mættu svo til okkar góðir gestir, þeir Hurðaskellir og Skyrgámur og sungu með okkur nokkur jólalög. Í lokin gáfu þeir síðan öllum börnunum bók að gjöf. Bókin sem þeir gáfu okkur heitir Komdu út og hefur að geyma fjölda hugmynda af því sem hægt er að gera úti í náttúrunni. Takk kærlega fyrir okkur kæru sveinkar!