news

Helgileikur 2023

14 Des 2023

Það er hefð fyrir því að elsti árgangur leikskólans setji upp helgileik og sýni hann í kirkjunni í desember. Foreldrar/forráðamenn og fjölskyldur barnanna eru boðin að koma að horfa á, ásamt öðrum börnum og starfsmönnum leikskólans. Þar sem elsti árgangur er fámennur fengu þau aðstoð með söng í helgileiknum frá Saltkrákubörnum. Þau stóðu sig öll mjög vel við leik og söng og er þetta alltaf voða hugljúf og jólaleg stund.. Við þökkum öllum fyrir komuna.