news

Gjöf frá foreldrafélaginu

26 Apr 2023

Í dag fengum við bakpoka að gjöf frá foreldrafélagi leikskólans. Um er að ræða 40 litla bakpoka fyrir börnin og 5 stærri bakpoka fyrir kennara. Ætlunin er að nýta þá í vettvangsferðum/gönguferðum undir aukaföt, nesti eða annað.

Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir þessa frábæru gjöf.