news

Forsetaheimsókn

08 maí 2023

Guðni Th. Jóhannesson forseti kom hér ásamt fríðu föruneyti í heimsókn í morgun. Við byrjuðum á að sýna honum leikskólann okkar og svo sungu deildarnar fyrir hann tvö lög í salnum, Eyrarvallalagið og svo Gulur, rauður, grænn og blár með hreyfingum. Eftir söng og spjall var smá myndataka og síðan héldum við út að sýna honum lóðina okkar. Það var skemmtileg tilviljum að hnýsa lék sér akkúrat hér fyrir framan leikskólann og stal því smá athyglinni frá blessuðu austfjarðaþokunni.