news

Bollu-, Sprengi- og Öskudagur

16 Feb 2024

Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur voru haldnir hér á Eyrarvöllum í vikunni.
Á bolludag voru borðaðar fiskibollur í hádeginu og í kaffitímanum gæddum við okkur á rjómabollum.
Á sprengidag var úðað í sig salkjöti og baunum í hádeginu. Á Öskudaginn mættu svo allir í búningum eða náttfötum, kötturinn (eða reyndar Lubbi) sleginn úr tunnunni og fengu svo allir saltstangir og djús eftir það. Hér er sko alltaf stuð.