news

Tendrun Jólatrésins í Neskaupstað

22 Nóv 2022

Nú styttist í tendrun jólatrésins. Það verður gert við hátíðlega athöfn sunnudaginn 27. nóvember kl:16:00. Þar ætla leikskólabörn að koma upp og syngja tvö lög með aðstoð Geirs Sigurpáls sem mun spila undir hjá okkur. Leikskólastarfsmenn og foreldrar sem mæta á viðburðinn aðstoða börnin við að koma upp til að syngja. Sungið verður ,,í skóginum stóð kofi einn" og ,,jólasveinar ganga um gólf".

Hjálpumst að við að gera þetta að skemmtilegri stund.