news

Öskudagurinn

06 Mar 2019

Í dag var mikið fjör hjá okkur þar sem við fögnuðum öskudeginum. Við fórum í salinn og slóum köttinn úr tunnunni, dönsuðum og höfðum gaman. Allir fengu snakk og djús :) Allir mættu í búningum eða náttfötum og voru alveg rosalega fínir og flottir, bæði börnin og starfsfólkið.

Tunnukóngarnir voru Snorri á Saltkráku og Kári Fannberg á Ólátagarði.

Tunnudrottningin var Aría Líf á Kattholti.