news

Karnival og grill

16 Jún 2017

Föstudaginn 9. júní héldum við flotta veislu í leikskólanum. Allar deildirnar voru í sínum litum; Sjónarhóll og Sólbakki voru gul, Glaumbær var rauður, Ólátagarður var grænn, Kattholt var blátt, Skarkalagata var bleik og Saltkráka var í öllum regnbogans litum :)

Við fórum svo í karnival í kringum leikskólann

og héldum diskó á vellinum.

Síðan var farið í það að grilla

Og biðu krakkarnir rosalega spenntir.

Svo var borðað í salnum (en það gleymdist að taka mynd af borðhaldinu) en það gekk alveg rosalega vel og allir ánægðir eftir daginn.