news

Jólaball

20 Des 2016

Í dag héldum við tvö frábær jólaböll. Á fyrra ballinu voru Sjónarhóll, Glaumbær og Ólátagarður en þar var lítið dansað í hring en allir svo duglegir að dansa og gera hreyfingarnar með. Á seinna ballinu voru Kattholt, Skarkalagata og Saltkráka og þar dönsuðu allir svo flott í hring og sungu með. Bæði böllin heppnuðust svo vel og var svo skemmtilegt að sjá hvað allir nutu sín vel. Við fengum í heimsókn tvo flotta jólasveina, þá Bjúgnakræki og Kertasníki sem dönsuðu með okkur og gáfu börnunum bangsa. Eftir böllin var svo jólakaffi á öllum deildum þar sem boðið var upp á heitt súkkulaði, piparköku og lagtertur.