news

Hátalarar og púslur

17 Nóv 2017

Enn og aftur erum við svo heppin að fá gjöf frá SÚN og í þetta skiptið keyptum við þessa fínu hátalara inn á hverja deild og í salinn. Við eigum nefninlega alveg ógrynni af tónlist, sögum og ævintýrum í tölvunum okkar sem við getum núna notið þess að hlusta á inni á deildum. Við keyptum líka fullt fullt af púslum sem skiptust niður á allar deildar en þó sérstaklega á þær yngri en þar voru þær orðnar af skornum skammti. En það gleymdist að taka myndir af öllum púslunum.