news

Dagur íslenskrar tungu

17 Nóv 2020

Það er venja hjá okkur í leikskólanum að hittast í salnum á Degi íslenskrar tungu og syngja saman og fara með vísur og þulur. En að sökum hólfaskiptingar í leikskólanum gátum við ekki gert það í ár. En við dóum ekki ráðalausar og héldum söngfund á Teams þar sem ein deild í einu söng fyrir hinar. Það var mjög skemmtilegt og fannst krökkunum frábært að sjá systkini sín og mömmur í tölvunni.