news

Dagar myrkurs

10 Nóv 2017

Dagar myrkurs eru alltaf skemmtilegir í leikskólanum. Þá koma allir í dökkum fötum í leikskólann og með vasaljós. Í þetta skiptið gátum við ekki tekið á móti úti vegna veðurs en í staðinn var farið í flæði í myrkrinu í leikskólanum. Við fengum svo heitt kakó og ristað brauð í morgunmat og lékum okkur með ljós og skugga.