news

Dagar myrkurs

13 Nóv 2019

Dagana 30.október til 3.nóvember voru Dagar myrkurs á Austurlandi.

Við á Eyrarvöllum gerðum margt skemmtilegt í tilefni af því. Á fimmtudeginum var flæði um allan leikskólann þar sem öllum var frjálst að fara milli deilda og leika sér. Á föstudeginum var vasaljósadagur, tekið var á móti börnunum úti þar sem allir mættu með vasaljós og léku sér úti með þau í myrkrinu og leituðu af drauga endurskinsmerkjum. Farið var inn fyrir morgunmat og þá fengum allir ristað brauð og heitt kakó og síðan var pizzuveisla í hádeginu. Margir föndruðu í tilefni af deginum eins og sjá má :)