news

Blár dagur

06 Apr 2018

Jæja er ekki kominn tími til að skrifa eitthvað á þessa síðu enda búið að vera mikil lægð hjá okkur á henni en alltaf nóg um að vera í leikskólanum það vantar ekki.

Í dag var blár dagur í leikskólanum til þess að sýna einhverfum stuðning. Það mættu því allir í bláum fötum og við hittumst í salnum og sungum saman. Einnig hafa börnin fengið að horfa á tvö myndbönd sem Blár apríl gaf út í fyrra og í dag um einhverfu.