news

BRAS barnamenningarhátíð

21 Sep 2018

Við vorum svo heppin hér í leikskólanum að fá hana Lemme til okkar föstudaginn 7. september. Hún er tónlistakennari og hélt fyrirlestur fyrir starfsfólk þriðjudagskvöldið 4. september og var svo hjá okkur allan föstudaginn. Þar hitti hún öll börn leikskólans í hópum og kynnti þeim fyrir hinum ýmsu hljóðfærum og var með þeim í frábærum tónlistartíma. Börnin skemmtu sér rosalega vel og gekk þetta þvílíkt vel.