Svefn og hvíld
Til þess að börn geti viðhaldið andlegri og líkamlegri heilsu og tekist á við lífið og leikinn, þurfa þau að fá næginlegan svefn og hvíld. Hegðun barna, heilsufar og lífsþróttur mótast af því hversu vel og reglulega þau sofa og hvílast. Eftir hádegismatinn í leikskólanum tekur við hvíld þar sem yngstu börnin sofa og þau eldri eiga saman rólega stund (öll börn þurfa hvíld).
Lögð er áhersla á:
- að skapa rólegt og notalegt umhverfi
- að átta sig á fjölbreytileika hvíldar
- að allir þurfa að hvíla sig en hafa misjafna þörf fyrir hana
- að auka vellíðan barnanna
- að róa líkama og huga.